Sjálfbærniskýrsla PwC 2024

Sjálfbærniskýrsla PwC 2024 

Sjálfbærniskýrsla Pricewaterhousecoopers ehf. (PwC) hefur nú verið tekin saman í fimmta sinn og kynnir megináherslur félagsins og frammistöðu á sviði samfélagsábyrgðar.

Skýrslan endurspeglar áherslur félagsins á sviði umhverfismála, ábyrgra stjórnarhátta, mannauðsmála og samfélagslegrar þátttöku á rekstrarárinu FY24 sem nær frá 1. júlí 2023 til 30. júní 2024.

Skýrslan er unnin í samræmi við Global Reporting Initiative staðalinn (GRI Core), en staðallinn styður fyrirtæki við miðlun og uppsetningu upplýsinga um samfélagsábyrgð á skipulagðan og gagnsæjan hátt.

 

Fylgstu með okkur