Skatta- og lögfræðisvið veitir margvíslega þjónustu á sviði skattaréttar og lögfræði, bæði er varðar skattamál hérlendis og erlendis. Aukin alþjóðavæðing og starfsemi íslenskra fyrirtækja erlendis krefst aukinnar þekkingar á skattalögum og reglum ólíkra landa. Skatta- og lögfræðisvið hefur því lagt áherslu á að efla sérhæfingu starfsfólks og mynda sterk tengsl við skrifstofur PwC um allan heim.
Skatta- og lögfræðisvið leggur mikið upp úr því að bregðast við þörfum viðskiptavina okkar og við veitum ráðgjöf um nánast allt það er viðkemur umsýslu og ráðgjöf skatta- og félagaréttar, sem verður sífellt umfangsmeiri í íslensku viðskiptalífi.
Mörg verkefni eru einnig unnin í samstarfi við önnur svið, t.d. eru áreiðanleikakannanir stór þáttur í okkar þjónustu og gjarnan unnar í samvinnu við endurskoðendur og fyrirtækjaráðgjafa félagsins. Nýtist þar hin þverfaglega þekking eins og best verður á kosið.
Markmið Skatta- og lögfræðisviðs er að vera leiðandi í innlendri og alþjóðlegri skattaráðgjöf, stunda fagleg og örugg vinnubrögð og búa að besta starfsfólkinu á þessu sviði.
Skatta- og lögfræðisvið PwC leggur áherslu á faglega uppbyggingu, þátttöku í námskeiðum og sérhæfingu starfsfólks. Við höldum reglulega fundi og ráðstefnur og stöndum fyrir markvissri útgáfu og tekur starfsfólk virkan þátt í þessu ferli.